Ungbarna dúnsæng frá Lín Design

Í vögguna eða ungbarnarúm

Nánar

Náttúruleg gæði dúnsins

Sængurnar frá LínDesign eru eingöngu fylltar með andardún og eru því vistvænar.  Það sem skiptir mestu máli í vali á gæðadún er aldur dúnsins.  Því lengur sem öndin dvelur við náttúrulegar aðstæður því þéttari verður dúnninn.   Eldri dúnn gefur betri einangrun og því þarf minna magn í sængina.  Áður en dúnninn fer í sængurnar er hann hreinsaður til að fjarlægja alla hugsanlega ofnæmisvalda.

Barnasængurnar frá Lín Design 

 

Barnadúnsængurnar fást í stærðunum 70x100 & 100x140.  Barnadúnsængurnar eru framleiddar úr sömu gæðum og stærri sængurnar.  Barnasængurnar eru því einstaklega léttar, mjúkar og þægilegar.  Sængurnar má þvo í þvottavél og þurrkara.

 

100% náttúruleg efni

 

Ytra byrði á sængunum er saumað úr 270 þráða bómull sem tryggir mjúka viðkomu.  Þegar sængin hefur verið þvegin í fyrsta sinn mýkist bómullin og þéttist.  Til að forðast ryk og önnur óhreinindi, sem geta framkallað ofnæmi, er mikilvægt að sængin sé framleidd úr bestu fáanlegri bómull.  Dúnsængurnar eru saumaðar í ferhyrninga til að koma í veg fyrir að dúnninn færist til. 

 

Hvers vegna er ekkert fiður í sængunum?

 

Í sængunum frá Lín Design er ekkert fiður.  Dúnninn einangrar mun betur en fiðrið.   Dúnninn andar einnig og losar mun betur raka en fiður.  Fiður er oft notað sem fyllingarefni á móti dúninum enda mun ódýrara efni.  Þar sem ekkert fiður er að finna í sængunum "stinga" þær ekki og eru dásamlega mjúkar.

 

Dúnn í stað gerviefnis

 

Á markaðnum má  finna úrval af sængum sem framleiddar eru úr gerviefnum.  Munurinn á dúnsængum og gervisængum er að dúnninn er mun þéttari í sér og heldur betur hita en gervisængur.  Dúnninn er einnig mun léttari og umhverfisvænni.  Ólíkt gerviefnum er dúnninn gæddur þeim eiginleikum að geta dregið í sig og losað raka á áhrifaríkan hátt.  Þetta verður til þess að dúnsængurnar halda upprunalegum eiginleika mun lengur en sængur úr gerfiefnum. 

 

Besta hitajöfnunarefnið

 

Dúnn er náttúrulegt efni & jafnframt besta hitajöfnunarefnið.  Dúnsængurnar frá Lín Design eru hólfaðar til þess að rétt magn af dúni fari í hvert hólf.  Með þessu helst rétt hitastig í allri sænginni.

 

Umhirða

 

Gott er að viðra & hrista sængurnar utandyra.  Sængurnar eru unnar úr 100% náttúrulegum efnum og "anda" því mjög vel.  Það er heppilegt að lofta vel um sængurnar í um klukkustund áður en þú setur rúmteppi yfir sængurnar.  Með þessu nærð þú að losa um raka sem hefur safnast í sængurnar.  Forðist að ryksuga sængina.  Með góðri umhirðu endist sængin í langan tíma.

 

Ofnæmi - nei takk!

 

Samkvæmt rannsóknum háskólans í Kiel í Þýskalandi og læknadeildar Wellington háskólans í Nýja Sjálandi eru dúnsængur mun betri fyrir fólk sem þjást af astma eða ofnæmi.   Rannsóknirnar sýndu að gervisængurnar eru mun líklegri til að innihalda ofnæmisvalda sem síðan valda astma eða ofnæmi.

 

,,Sængur úr gerviefnum safna hraðar í sig ofnæmisvökvum frá rykmaurum en sængur sem gerðar eru úr dúni.  Lengi var því trúað að rykmaurar tímguðust betur í sængum gerðum úr dúni en úr öðrum efnum.  Því eru stundum auglýstar ofnæmisfríar sængur úr gerviefnum.  Rannsóknir seinna ára benda til þess að þessu sé alveg öfugt farið og að rykmaurar tímgist verr í dúnsængum.  Rannsóknir virðast kollvarpa þeirri trú að gerviefni séu betri í sængurfatnað þeirra eru eru með ofnæmi en dúnsængur og dúnkoddar".*

 

* Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi

Hentar í vögguna eða ungbarnarúm og í vagninn

Dúnsæng stærð ; 70x100  /   200gr

Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það venjulega tekur 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.

 

Starfsfólk Bútik

Veldu magn:

Almennt verð: 8.980 kr.
Okkar verð 8.980 kr. Setja í pokann
// Til baka




Leit