Hönnuðurinn María Krista Hreiðarsdóttir er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands auk þess sem hún lærði iðnhönnun frá Iðnskólanum í Hafnarfirði. María Krista er hönnuðurinn á bak við Krista Design sem selt er á Bútik.is.
Handverk og hönnun hefur lengi verið áhugamál hjá Maríu og sérstaklega finnst henni gaman að hanna nytjahluti og skrautmuni úr efnum sem eru óvenjuleg og ekki verra ef þau eru endurnýtt á einhvern hátt.
Ef notagildið er gott, hluturinn heppnast og gleður kaupandann þá er takmarkinu náð.
Hugmyndin að hitaplöttunum kviknaði þegar hún var að dást að endurnýtingunni hjá Gúmmívinnslunni og vörunum sem þeir standa fyrir. Þar sem þeir framleiða mestmegnis hluti og efnivið sem nota á utandyra, datt henni í hug að gera mætti sniðuga og jafnframt fallega hluti úr efninu fyrir heimili. Hönnunin sjálf er unnin útfrá áttablaðarósinni sem lengi hefur verið í uppáhaldi hjá Maríu og langaði henni því að blanda saman þessum ólíku þáttum, endurunnu nútímalegu gúmmí úr gúmmídekkjum og ævagamalli mynsturhönnun sem allir þekkja.



Eins nýtir hún nokkuð óvenjuleg efni í hönnun sína, eins og baðflísar í Selskapsbakkana og álklæðningar og fiskiroð í skartgripi.
María valdi fyrir okkur tíu uppáhalds hlutina sína á Bútik.is og ætlar að deila því með okkur
- Sif Cosmetics EGF húðdroparnir
- OPI naglalakk, Cajun Shrimp
- Leggjabrjótur frá Volcano Design
- Take away bolli frá Saga Form
- City sólgleraugu
- Diesel Dömuúr með stálkeðju
- Ígló rauð jakkapeysa á stráka
- Asics - GT-2150 – Svartur
- Baggu innkaupapokinn
- IITTALLA skál Marimekko