OPI naglalökkin eru í miklu uppáhaldi hjá mér! Ég hef átt nokkur OPI naglalökk í gegnum tíðina og virðast þau aldrei valda mér vonbrigðum! Þau eru á góðu verði, þau endast lengi og eru fljót að þorna sem er sérstaklega mikilvæg þar sem ég er svo óþolinmóð og er venjulega byrjuð að gera eitthvað annað áður en önnur naglalökk þorna!
OPI var að koma með nýja línu sem kallast Swiss. Það sem er svo skemmtilegt við OPI naglalökkin eru þessir flottu litir og þessi flottu nöfn!