Ingibjörg Hanna er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands en hefur undanfarin ár starfað við vöruhönnun. Viðfangsefni hennar eru fylgihlutir fyrir heimilið sem hafa notagildi en eru um leið hálfgerðir skúlptúrar.
Þekktustu vörurnar hennar eru mjólkurglösin Fjölskyldan mín en þau hannaði hún ásamt Dagnýju Kristjánsdóttur, Krummi herðatré og Ekki Rúdólfur snagar.
Bútik selur Krummi herðatré, Halldór Laxness Minnistöfluna og Ekki Rúdólfur snagar hér.



Krummi herðatré hefur slegið rækilega í gegn á alþjóðavísu. Hann hefur flogið út um allan heim og sýnt á hönnunarsýningum í London, Moskvu, Tallinn, Helsinki, Tokyo, Shanghai, Peking og Kaupmannahöfn. Hann hefur tekið þátt í listasýningum í París og London, óperu í London og tískuvikunni í París. Diesel í London notaði hann í uppstillingum í verslunum sínum og BNG í Istanbul sömuleiðis. Hann er til sölu í 11 löndum og hefur fengið ótrúlega mikla umfjöllun í alþjóðlegum hönnunar- og tísku- og dagblöðum eins og Elle Decoration, Glamour, Icon, Sunday Times o.fl.
Ingibjörg Hanna vann hönnunarkeppni sem Hönnunarmiðstöð Íslands, verslunin Kraum og Listasafn Reykjavíkur stóðu fyrir. Keppnin fólst í því að hanna nytjahlut með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró.
Ingibjörg Hanna tók saman sína 10 uppáhaldshluti á Bútik

1. Muuto Vasi Four 
2. Gúmmímotta / dyramotta - Hönnun Tinnna Gunnarsdóttir
3. Íslensk samtímahönnun (bók)

4. TakeAway bolli frá Sagaform - svart/hvítt
5. Muuto Kanna FLOW
6. Flora Islandica - Eggert Pétursson
7. Alessi rifjárn Parmenide
8. PET vatnskanna frá Sagaform
9. Sóley Organics - Organics Luxury

10. Hendrikka Waage - Tibet Collection svart armband tvöfalt