Bútik mælir með fyrir augnahárin
Maybelline Volume Express The Falsies - ég hef notað þennan maskara síðustu mánuði er mjög ánægð með hann - hann stendur svo sannarlega undir nafni þar sem ég hef margoft verið spurð hvort ég hafi farið í vinsælu augnaháralenginguna en svo er ekki.

Bútik mælir með farðanum frá Youngblood
- ég var svo heppin að fá að prófa þennan fína farða þegar við byrjuðum að selja hann í Bútik. Ég hef notað hann núna á hverjum degi og ég elska hann! Ég er að nota ljósari litinn og finnst æðislegt að nota þessar vörur, það eru í pakkanum tveir litir af farða, ljós undirfarði, kinnalitur bursti og prufa af Hi-Definition Hydryting Mineral Powder. Kinnaliturinn er æði - hann heitir Sherbet og er ferskjubleikur með glansi í svo ég hef hætt að nota highlitherinn ofan á förðunina til að lýsa aðeins upp kinnbeinin. Settið er alls ekki dýrt og er selt á aðeins 6.990 kr hjá Bútik

Bútik mælir með All Colors sokkabuxunum frá Oroblu
- Ég á nokkrar svona sokkabuxur og mæli tvímælalaust með þeim - þær koma í svo mörgum flottum litum og poppa upp öll outfit.

Bútik mælir með
Konur eiga orðið 2011 fyrir þær sem vilja vera skipulagðar og halda utan um markmiðin sín
- ég fékk mér þessa fínu bók núna í byrjun árs til að halda utan um skipulagið og markmiðin mín! Þetta er svo fín og flott bók sem er skreytt með skemmtilegum myndum og orðum frá íslenskum konum!

Bútik mælir með Ekki rudólf fyrir heimilið
- Ingibjörg Hanna er að gera góða hluti með Ekki rúdólf og Krummunum. Þetta eru skemmtilegar lausnir fyrir stelpur eins og mig sem eiga skemmtilegar flíkur og aukahluti sem eiga helst að vera til sýnis!
