Sama stærð og Orginal Chillow púðinn. Kæliflötur á báðum hliðum. Það er einstaklega auðvelt að strjúka af og þrífa Chillow Plus púðann og þessvegna er hann tilvalinn til að kæla særð húðsvæði (útbrot, hrufl, skrámur o.þ.h.).
Þar sem það er kæliflötur á báðum hliðum púðans er ekkert stamt efni. Þess í stað fylgir honum franskur rennilás og gúmmí stykki sem hægt er að nota til að sveigja hann að þínum þörfum. Vegna tvíhliða kælingarinnar er hægt að nota Chillow plús sem vafning, þ.e. vefja honum utanum særðan eða bólginn handlegg eða fót.
Chillow PLUS er auðvitað líka hægt að nota í hvíld, margir viðskiptavinir kjósa hann frekar vegna þess að þeir geta lagt hendurnar undir hann á meðan að legið er sem veitir aukna kælingu og þægindi fyrir hendur og úlnliði sem og höfuðið. Þetta er sá alvinsælasti!
Chillow heilsu og kælikodda línan frá Soothsoft er einstök. Aðeins er framleitt úr hágæða efnum og samkvæmt ströngustu læknastöðlum, ekkert gel eða latex er í koddunum og eru þeir því algjörlaga ofnæmisfríir.
Chillow kælikoddarnir veita frábæra kælingu án rafmagns og eru því einstaklega umhverfisvænir. Þú einfaldlega setur ákveðið magn af hreinu íslensku vatni þegar þú tekur hann í notkun, og eftir það er hann alltaf tilbúinn. Viðhaldsfír og umhverfisvænn. Chillow kælikoddarnir hafa reynst mörgum vel og notkunarmöguleikarnir eru ófáir og koma sífellt á óvart.
Skoðaðu hér myndband þar sem Rachel Ray fær 3 konur til að prófa koddann við svitakófum!
Chillow komu fyrst á markað í Bandaríkjunum 2005 og var upprunaleg framleiðsla hugsuð fyrir konur sem glíma við hita og svitakóf. Hinsvegar þá reynist hann þeim vel sem eru með mígreni, fá oft höfuðverk af öðrum orsökum, hafa fótaóeyrð svitna mikið á nóttunni o.s.frv. Þeir hafa hlotið gríðarlegt lof hvarvetna og fólk á öllum aldri og af báðum kynjum hreinlega elska að nota þá. Það verður enginn svikinn af Chillow.