Skilmálar og reglur

Skilmálar og reglur 

Bútik.is tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir það sem pantað var. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu í netpósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Bútik.is. 

Afhending      
Þær vörur sem þú pantar á vefnum eru sendar til þín með Íslandspósti. Þegar gengið er frá pöntun sendum við Bútik pokann innan 3ja virkra daga til póstsins, sem keyrir hann út næsta virka dag á eftir og ætti að jafnaði að berast 2-5 virkum dögum eftir pöntun. Einnig geturðu sótt Bútik pokann til okkar á 2.hæð í Turninum, Smáratorgi 3 Kópavogi á þriðjudögum og föstudögum á milli klukkan 15 og 17. Það getur komið fyrir að vörur séu tímabundið uppseldar og ef svo er látum við þig vita með tölvupósti.

Sendingarkostnaður 
Ef þú vilt fá Bútik pokann sendan á pósthúsið bætast 690 við vöruverðið, en 1150 krónur bætast við ef þú vilt fá hann sendan heim að dyrum.  

Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun 
Hægt er að greiða pantanir með greiðslukorti.  Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt. Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kreditkortanúmer, sem gefnar eru upp við pöntun á Bútik vefnum eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar, til að tryggja að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar. 

Netverð (verð)  
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að verðið á netversluninni getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur. 

Vörur 
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir. 

Skilaréttur 
Við hjá Bútik viljum að þú sért ánægður með það sem þú verslar hjá okkur og ef ekki, þá getirðu skilað því sem þú keyptir og fengið endurgreitt innan 30 daga. Til þess að við getum endurgreitt þér þarftu að skila vörunni óskemmdri og í upprunalegu útliti (upprunalegum umbúðum) og láta kvittun fylgja með. Þú getur sent okkur vöruna í pósti eða komið til okkar í Turninn, Kópavogi milli kl. 11 og 18 alla virka daga. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur nema um galla sé að ræða. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. 

Trúnaður og persónuupplýsingar 
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við leggjum áherslu á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt.

Varnarþing 
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. 





Pokinn minn


Leit