Frón, Rós og Hlemmur eru hitaþolnir plattar unnir úr endurunnu hjólbarðagúmmí út frá áttlbaðarósinni sem kunn er úr íslenska handverkinu. Sérstaklega falleg íslensk og umhverfisvæn gjöf.
Hönnuður: María Krista Hreiðarsdóttir, grafískur hönnuður.
Hugmyndin á bakvið hönnunina:
Hönnuði Kristu Design langaði að fara lengra með notkunarmöguleika endurunna gúmmísins og hanna nytjavöru fyrir heimilin. Þá kveiknaði hugmyndin af “Hitaþolna plattanum”. Mynstrið sem skorið er í plattana er unnið út frá áttblaðarósinni sem mörgum er kunn úr íslensku handverki. Gömul en sígild hönnun sem sómir sér hvar sem er.
Það eru ýmsir möguleikar í notkun hitaplattans og t.d. má nota eina útfærsluna sem kertastjaka. Hægt er að raða plöttunum saman og mynda stærri heild fyrir fleiri eldföst föt eða potta. Hitaplattinn þolir vel heita potta og eldföst mót. Auðvelt að þrífa og hann rispar hvorki borðplötur né gler. Eins er hann óbrjótanlegur og má fara í uppþvottavél.
Efniviður:
Endurunnið hjólbarðagúmmí frá Gúmmívinnslunni. Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur enduvinnsla á gúmmíi. Strax var farið að endurvinna vörubílahjólbarða með sólningu. Við sólninguna fellur til gúmmí sem nýtt er til framleiðslu á ýmsum nytjahlutum svo sem öryggishellum, mottum, millibobbingum fyrir fiskitroll, plöttum og fleiru. Með þessari endurvinnslu er stuðlað að verndun umhverfisins og þróunar á arðbærri framleiðslu úr hráefnum sem að öðrum kosti yrðu ekki notuð.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Turninum, Smáratorgi 3 (2.hæð) í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik