ICEPAL er ný íslensk hönnun (Icelandic Personal Alert) - persónulegt viðvörunarkerfi, sem er frábært öryggistæki fyrir fólk til að taka með sér í gönguferðir að kvöldi, út að hlaupa, eða bara hvenær sem er og hvar sem er. Hentar einstaklega vel fyrir ungt fólk til að taka með sér út á lífið, í ferðalög erlendis eða til dæmis á útihátíðir.
ICEPAL er einstaklega þægilegt og auðvelt í notkun. Það er lítið og létt og auðvelt að hafa það meðferðis, um hálsinn eða smella því á töskuna. Hægt að skipta um rafhlöðu.
ICEPAL virkar þannig að þegar togað er ákveðið í spottann / dúskinn þá gefur tækið frá sér skerandi hljóð upp á 100 desibil í allt að 500 metra radíus og endist a.m.k. fimm mínútur í stanslausri hringingu. Það dregur því athygli allra sem nálægir eru og eykur verulega líkur á því að fæla í burtu meintan árásarmann.
Bútik er stolt af því að vera í samstarfi við ICEPAL.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik