Kertastandurinn er 100% íslensk framleiðsla og hönnun.
Um er að ræða kertastjaka fyrir útikerti, t.d. á leiði en einnig fyrir heimili, við innganga og tröppur svo eitthvað sé nefnt.
Kertastandurinn fæst í 4 mismunandi gerðum.
Þeir bera nöfnin "Orri"og "Bjartur"sem eru með krosstákni í hliðunum og henta sérstaklega vel í kirkjugarðinn eða sem samúðargjöf.
"Orri" er stærri gerðin og er á 15 cm háum gúmmístalli sem gerir hann mjög stöðugan.
Hæð: 315mm og breidd: 200mm.
Minni gerðin kallast "Bjartur" og kemur á gúmmíplatta sem þyngir hann og ver einnig undirlagið sem hann stendur á hverju sinni.
Hæð: 165mm og breidd: 185mm.
Hinar 2 gerðirnar kallast "Eldur" og "Logi" og eru þeir með logatákni í hliðunum og henta þeir betur fyrir almenna notkun, við heimilið, á sólpallinn, eða tröppurnar og við hversskonar tilefni.
"Eldur" kallast stærri standurinn Hæð: 315mm og breidd: 200mm en "Logi" sá minni; Hæð: 165mm og breidd: 185mm.
Hluti ágóðans af sölu Orra og Bjarts mun renna í minningarsjóð Orra Ómarssonar sem lést
30. janúar 2010 og er markmið sjóðsins að hjálpa ungu fólki á yngsta stigi framhaldsskóla sem upplifir í hjarta sínu og sál, djúpa dali.
Efniviðurinn í kertastöndunum er endurunnið gúmmí frá Gúmmívinnslunni á Akureyri og ál sem er dufthúðað og því sérlega sterkt og endingargott.
Kertastandarnir afhendast í handhægum og snyrtilegum umbúðum.
Kostir “Kertastandsins” eru þessir:
Gúmmíið verndar viðkvæma fleti eins og trépalla, málaðar tröppur og stéttar.
Eins er standurinn þungur og því mjög stöðugur og traustur.
Gefur frá sér fallega birtu og veitir loganum um leið skjól.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik