Hillan bætir úr brýnni þörf þeirra sem sífellt þurfa að færa smádót á milli vasa og veskja. Hún er samruni hillu og skála, hugsuð sem fráleggsstaður fyrir lykla, síma og smápeninga. Á henni er hægt að ganga að eigum sínum vísum á leið í næsta ferðalag og því tilvalin til staðsetningar nálægt útidyrum.
Hillan er til í nokkrum litum, hvítu, bleiku, dökkgráu, drapplituðu og grænu og kemur í tveimur stærðum, 42 cm lengd x 19 cm dýpt, og 90 cm lengd og 19 cm dýpt.
Hönnun: Sigríður Sigurjónsdóttir & Snæfríð Þorsteins
Efni: MDF háglansandi lakk
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik