Frábær hugmynd og hönnun sem leyfir þér að hengja upp og sýna uppáhaldsflíkina þína. Þegar engin flík eða skartgripur hangir á krummanum nýtur hann sín frábærlega sem skraut. Krumminn er hengdur í loft í stálvír og hangir frjáls niður og hægt er að búa til skemmtilegt listaverk með því að hengja marga krumma saman og búa þannig til krummafjölskyldu.
Hönnuður: Ingibjörg Hanna
Lakkaður krossviður.
Stærð: Breidd 43 cm hæð 20 cm.
Litur: svartur/hvítur
Sjá umfjöllun Mörtu Maríu um Krummana hér!
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Íslandspóstur tekur 1-3 virka daga að koma vörunni til þín.