Skarthengið er unnið úr plexigleri.
Málin eru: hæð 30 cm, breidd 20 cm x 2 (þe. hvor hlið).
Litir: Svart, rautt, glært, hvítt.
Hliðarnar er vinklaðar í 90°.
Hér hanga skartgripirnir til skrauts á milli þess sem þeir eru notaðir, algjör óþarfi að láta þá liggja í lokuðum rýmum. Skarthengið hefur pláss fyrir hringa, armbönd og hálsmen efst. Á næstu stöng má hengja eyrnalokka, úr og nælur Á þrepa stönginni með rifunum má setja pinnaeyrnalokka og hengja þá pörin saman.
Um hönnuðina:
Að hönnun Skarthengisins frá Dis standa systurnar Þórdís og Sveindís. Þær hafa báðar mikinn áhuga á hönnun og handverki en hafa hvorugar menntun á sviðinu.
Þær réðust í hönnun Skarthengisins eftir að hafa rekið sig á að vörur á markaði sem áttu að þjóna sem geymslur undir skartgripi, leystu ekki öll þau vandamál sem upp koma við geymslu skartgripa. Má þar helst nefna geymslu fyrir pinnaeyrnalokka sem og það að festar eiga það til að flækjast eða vera ekki nógu mikið punt á meðan skartið er í dvala.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur venjulega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Turninum, Smáratorgi 3 (2.hæð) í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik