Blámi - Gjafapappír 2 í pakka

Nánar
Á pappírnum er að finna aldargömul Herforingjaráðskort, landakort af Íslandi, sem eru í mælikvarðanum 1:50000 og er því lítið svæði á hverju korti.  Oddi prentaði kortin fyrir okkur á gjafaarkir, 70x100 sm.  Þær eru stórar og fannst okkur miklu skipta að góð gæði væru í pappírnum og gott að pakka inn í hann. Við völdum þessi kort vegna þess að litirnir og mynstrin í þeim eru svo falleg. Einnig er skemmtilegt við arkirnar að engir tveir pakkar verða eins því mynstrið er svo fjölbreytt á einni örk. 

Skemmtileg saga er á bakvið kortin. Danska Herforingjaráðið lét gera þau og fóru Danir hér um á hestum og sváfu í tjöldum á milli þess sem þeir mældu landið upp og teiknuðu.  Við höfum tvær gerðir af kortum í sölu núna,  Norðurárdalinn frá 1913 og Heinabergsfjöll frá 1905 en ártal þeirra kemur fram á hverri örk.Við sjáum kortin einnig sem ákveðna innsýn í Ísland. Fólk hefur staldrað við og byrjað að skoða kortin og reynt að átta sig á því hvar á landinu það er statt. Það er mjög skemmtilegt og gefur pappírnum meira vægi. Einnig til þess að vekja athygli á því að á Íslandi er alls staðar fallegt, eina sem maður þarf að gera er að anda að sér ferska loftinu, horfa í kringum sig og njóta!



Veldu magn:

Almennt verð: 1.390 kr.
Okkar verð 1.150 kr. Setja í pokann
// Til baka




Leit