Sif Cosmetics húðdropar 15ml

EGF BIOeffect™

Nánar

Sjá frétt Stöðvar 2 um Sif Cosmetics húðdropana hér!

EGF(TM) húðdroparnir eru afurð íslenskra vísindarannsókna og spennandi nýjung á snyrtivörumarkaðinum. Þeir innihalda svokallaða frumuvaka sem hvetja náttúrulega endurnýjun húðfruma. Frumuvakarnir eru framleiddir í byggi af nýsköpunarfyrirtækinu ORF Líftækni. EGF  (TM) húðdroparnir hafa hlotið einróma lof notenda og í nýlegum prófunum á Íslandi sögðust 98% þátttakenda taka eftir frískara yfirbragði á húðinni eftir notkun þeirra.

* Virka á þekkt endurnýjunarferli í húðfrumum
* Sporna gegn hrörnun húðarinnar
* Fallegri áferð
* Jafnari litur og ferskara yfirbragð
* Aukinn raki og aukin fylling
* Íslensk nýsköpun á vísindalegum grunni

Einfalt í notkun
EGF húðdropar eru meðferð í einu glasi, því þeir henta fyrir andlit, augnsvæði og háls. Best er að bera EGF húðdropa á fyrir nóttina svo þeir liggi á húðinni í hvíld. Það gefur húðinni færi á að vinna að bættu útliti innan frá. Berið 2-4 dropa á andlit og háls á hverju kvöldi eftir hreinsun húðarinnar.

Áhrif EGF húðdropa á húð
EGF húðdropar innihalda EGF frumuvaka sem stýrir sameindaferlum sem stjórna vexti og endurnýjun húðfruma og hægja á náttúrulegum ferli öldrunar. EGF frumuvaki er prótein sem húðfrumur framleiða sjálfar og er hluti af eðlilegu endurnýjunarferli húðarinnar. Magn frumuvakans í húð minnkar með aldri en hægt er að endurnýja hann með því að bera hann á húðina. Húðfrumurnar þekkja EGF frumuvakann og setja í gang sameindaferli þegar hann binst við yfirborð þeirra. EGF  húðdroparnir virkja því eiginleika húðfrumanna sjálfra til þess að endurnýja sig og gefa unglegra útlit.

* Íslenskt hugvit - íslensk framleiðsla
* Árangur margra ára rannsóknar- og þróunarstarfs
* Hentar öllum húðgerðum
* Viðurkennt af húðlæknum
* Án þekktra ofnæmisvaka
* Án rotvarnar- eða aukaefna
* Án lyktar- eða litarefna
* Engar dýraprófanir 

Sjá umfjöllun Mörtu Maríu á Pressunni hér!

 Tvær stærðir:

4.5 ml  og 15 ml

Sjá hér umsagnir fólks um dropana:


Ég er alveg í skýjunum með þessa dropa [...] get loksins farið að nota farða, hef ekki getað það í einhver ár :) og ekki skemmir fyrir að þetta sé íslenskt ;)

Anna, 39 ára

Húðdroparnir eru mjög rakagefandi, ganga vel inn í húðina og þurrkublettir á andliti hafa horfið. Áferð húðarinnar er líka fallegri
Auður, 40 ára


Hrukkur hafa grynnkað og húðin er afar mjúk.
Ágústa á Facebook

Ótrúlegir dropar! Húðin verður silkimjúk og yngist við fyrstu notkun :)
Elín, 32 ára

Frábær vara - sýnilegur árangur strax.
Hafdís, 50 ára

Húðin virðist þéttarari og litur jafnari og frísklegri
Hafdiz bloggar


Ég er ekki frá því að þessir EGF húðdropar séu að gera kraftaverk fyrir mig. Vildi að ég ætti fyrir og eftir mynd en eina litla hrukkan mín er farin og roðinn í húðinni er að hverfa.
Helga á Facebook


Virkar rosalega vel á exem þurrkublettina mína :D hvílík hamingja!!

Helma á Facebook


Þessir dropar eru alveg snilld  ... er búin að nota þá í aðeins tvær vikur, sé þvílíkan mun á húðininni og þeir eru á hraðri leið með að útrýma mínu vandamáli í sambandi við húðina! Þeir fá 5 stjörnur af 5 mögulegum frá mér ;-)
Hrafnhildur, 33 ára í Vikunni


Ég er ein af þessum sem er með „venjulega húð“ og hef ekki haft nein sérstök húðvandamál. Ég hef lengi leitað að góðu kremi í kringum augu sem er milt og svíður ekki undan.
Húðdroparnir henta mér mjög vel, því ég nota þá ekki einungis í kringum augun, heldur á allt, ég nota þá alltaf á kvöldin þegar ég hef hreinsað húðina. Mér finnst húðin frísklegri eftir að ég fór að nota dropana og mæli hiklaust með þeim við allar vinkonur mínar.

Inga, 50 ára


Fékk húðdropana til prufu á fimmtugsafmælinu, til að tryggja áfram unglegt útlit. Held að það hafi tekist.  
Kristín bloggar


Exemið sem ég hef þjáðst af bakvið eyrun hvarf á 3 dögum. þetta heldur raka í húðinni í allavegana 24 tíma. Svo var ein okkar sem notaði þetta á sprungnu hælana á sér og þetta allt svo vel upp að sprungurnar gréru á nokkrum dögum.
Kristín, 40 ára

Ég sá talsverðan mun á því hversu sléttari húðin er og litlu hrukkunum hefur fækkað.
Lóa, 39 ára

Húðdroparnir gefa húðinni mjög góðan raka án þess að gera húðina feita.

Nolan 3 bloggar (á ensku)


Áreiðanlega bestu húðdropar sem ég hef nokkurn tíma prófað. Áhrifin eru undraverð – ég hefði aldrei trúað þessu. Ég er mýkri og hef afpantað næsta Botox-tíma. Húðin er ótrúlega miklu stinnari. Mér finnst eins og 15 ár hafi horfið.

Ragga S  bloggar


Prófaði þessa dropa – þetta er æðislegt – ég er búin að nota þetta núna í 4 vikur. Það er búið að segja við mig fimm sinnum síðustu 2 vikurnar hvað húðin hjá mér lítur vel út. Meira segja tvisvar út í búð af fólki sem ég sé reglulega en þekkir mig ekki neitt.

Roko bloggar


Búin að prófa í 3 vikur og sé mikinn mun...var alltaf með þurrkbletti og búin að prófa öll heimsins rakakrem og síðan ég byrjaði að nota þessa dropa hafa þeir bara ekki látið sjá sig og ég get líka sagt að húðliturinn er mikið jafnari en áður þannig að ég er 100% sátt :)

Unnur, 42 ára


Áhrif húðdropanna komu í ljós nánast frá fyrsta degi. Húðin varð stinnari og hrukkur minna áberandi.

Unnur, 64 ára í Vikunni

Ég hef notað húðdropana í nokkrar vikur. Almennt séð finnst mér droparnir gefa húðinni fallegt yfirbragð og einhver gljái kominn sem var ekki til staðar áður. Húðin er núna silkimjúk viðkomu og augljóslega mikill raki í henni. Undanfarið hefur fólk hreinlega haft orð á því hve vel ég líti út og spurt hvað ég noti eiginlega. Því mæli ég hiklaust með EGF BIOeffect húðdropunum við alla sem ég hitti.
Alla Bass á Facebook 


Veldu magn:

Almennt verð: 9.300 kr.
Okkar verð 8.990 kr. Setja í pokann
// Til baka




Leit