GRÆÐIR – allra handa græðissmyrsl
GRÆÐIR er smyrsl sem er laust við öll aukaefni. Smyrslið er búið til eftir gamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu Sóleyjar til dagsins í dag.
GRÆÐIR hefur margsannað virkni sína við ýmsum húðvandamálum, t.d. gegn exemum; þar á meðal psoriasis, þurrkublettum, ertingu í húð, varaþurrki, bleyjuútbrotum og minni háttar sárum.
Góð virkni GRÆÐIS þegar kemur að brunasárum er þó það sem gerir hann hvað undraverðastan. Einnig hefur komið í ljós góð virkni hans hans gegn sveppasýkingum á kynfærum.
GRÆÐIR er smyrsl sem ætti að vera til á hverju heimili, og í hverri handtösku.
Inniheldur: Kókoshnetuolíu,* möndluolíu,* býflugnavax*, villtar íslenskar lækningajurtir (betula pubescens, achillea millefolium, salix spp, arctostaphylos uva-ursi).
Engin innihaldsefni hafa verið prófuð á dýrum.
*Lífrænt vottað.
15 ml
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það venjulega tekur 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik