steinEY inniheldur steinefnaríkan leir ásamt blöndu af þurrkuðu íslensku birki. Leirmaskinn vinnur á óhreinindum og losar aukefni sem safnast fyrir á húðinni, hann kemur á jafnvægi, örvar efnaskipti, stinnir og styrkir húðina og hjálpar þannig á móti öldrun hennar. Leirmaskinn undirbýr húðina til þess að taka betur á móti þeim virku efnum sem er að finna í Sóley Organics húðvörunum. Best er að nota „steinEY“ leirmaskann á eftir hreinsun húðarinnar með „hrein“ andlitsmjólkinni eða „fersk“ hreinsifroðunni og „GLÓey“ andlitsskrúbbnum en á undan „nærð“ andlitsspreyinu, enda svo á „eyGLÓ“ andlitskreminu til að gefa okkur raka og mýkt. Hentar öllum húðgerðum,og gefur húðinni mjög frísklegan og áferðafallegan blæ.
Þessi maski kemur í duftformi sem gerir hann mjög skemmtilegan í meðförum. Þú tekur eina teskeið af maska og setur í skál bætir smá vatni út í þar til þú hefur náð þeirri áferð sem þú vilt. Borið á andlitið og látið bíða í 5-10 mínútur, eða þar til að maskinn er þurr og orðin ljósgrár að lit, þá er maskinn þurrkaður af með vatni og húðin ljómar.
Innihald: Kaolin, Magnesium,Calcium, Sodium, Potassium, Iron, Zinc, villtar íslenskar jurtir, og leir frá Eyjafjallajökli.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd um leið og hún berst. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá er opið hjá okkur í Akralind 3 (2. hæð), í Kópavogi, alla virka daga milli kl 9 og 14. Síminn hjá okkur er 534 5015.
Starfsfólk Bútik