EGF ENHANCING DAY CREAM
Nýja EGF dagkremið frá Sif Cosmetics er silkimjúkt krem sem hentar mjög vel undir farða og viðheldur rakastigi húðarinnar. Það var sérstaklega þróað til að styðja við virkni EGF húðdropanna. Saman veita þessar nýju íslensku hátæknisnyrtivörur vellíðan og betra útlit að degi sem nóttu.
• Inniheldur EGF frumuvaka
• Fá og örugg innihaldsefni, engin paraben efni
• Veitir húðinni fallega áferð
• Hentar öllum húðgerðum
Best er að bera EGF dagkremið á hreint andlit og háls á hverjum morgni. Dagkremið styður náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar og veitir henni nauðsynlegan raka og næringu yfir daginn. Kremið gengur hratt inn í húðina og gefur mjúka og fallega áferð.